Hrafnseyri og frjáls tjáning

Í þessu samtali okkar Odds Ævars Gunnarssonar var ég m.a. spurður hvert ég myndi flytja forsetasetrið ef það yrði að fara frá Bessastöðum. Ég sagði að vel færi á að flytja það að Hrafnseyri við Arnarfjörð, þar sem Jón Sigurðsson var fæddur (1811-1879), en staðurinn er auk þess kenndur við einn merkasta Íslending fyrri alda, Hrafn Sveinbjarnarson lækni (1166-1213), sem hitti Thomas Becket erkibiskup í Kantaraborg, lærði læknisfræði í Salerno á Ítalíu, framkvæmdi skurðaðgerðir hérlendis, ferjaði fólk frítt yfir Breiðafjörð og var í stuttu máli einn fremsti maður sem Ísland hefur alið.

Af þessum sögulegu ástæðum er staðurinn í miklu uppáhaldi hjá mér og þangað fór ég nú fyrir stuttu á ferð minni um Vestfirði.

Báðir þessir menn voru óhræddir við að láta ljós sitt skína, öðrum til gagns. Sem samfélag hljótum við að vilja hvetja fólk til þess að nýta hæfileika sína og láta rödd sína hljóma, en ekki berja menn niður, atyrða þá, smána og niðurlægja. Í viðtalinu ræðum við Oddur um tjáningarfrelsið og þá ósk mína að sem flestir nýti sér það. Til að svo megi verða þurfum við að nýta þetta frelsi (eins og annað frelsi) með ábyrgum hætti. Í því felst m.a. að orðræða má ekki verða svo ómálefnaleg, ljót og niðurlægjandi að friðsamt og skynsamt fólk veigri sér við að taka þátt í þjóðfélagsumræðu. Slíkt væri í andstöðu við markmið tjáningarfrelsisins, því þá er í raun verið að vega að tjáningarfrelsinu undir merkjum tjáningarfrelsis.

Á ferðum mínum um landið síðustu vikur hef ég því miður hitt allt of marga sem segjast ekki treysta sér til að tjá skoðun sína opinberlega, af ótta við ofsafengin viðbrögð þeirra sem telja sig hafa ,,réttari skoðanir". Þegar fólk er farið að ritskoða sjálft sig með þessum hætti erum við komin á háskalega braut sem beinist í átt frá lýðfrelsi og lýðræði. Þessu þarf að snúa til betri vegar með þjóðarátaki þar sem við hlustum á hvert annað, svörum málefnalega og leyfum hvert öðru að tjá hug sinn, sjálfum sér til heilla og samfélaginu til framdráttar.

Greinin birtist fyrst á blog.is

Greinar